|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans][Kaupa myndir tyrkjans]
12.4.05
Páskamyndir
Tyrkinn setti inn nokkrar myndir frá Páskadegi þar sem Soldáninn gúffar í sig eggi á mettíma, enda kemst sá stutti ekki oft í slíkar gersemar. Myndirnar eru allar teknar á nokkrum mínutum og mynda nokkurs konar myndasögu frá því að eggið er tekið úr plastinu þar til sá stutti er kominn í þessa fínu sykurvímu alsæll með lífið og tilveruna.
Sjá myndirnar hér
5.4.05
Páskar
Þá kemur loks síðbúin páskaumfjöllun. Páskafríið var strax haldið hátíðlega með páskapóker pókerklúbbsins p****. Bjarkinn hýsti leikinn að þessu sinni og mættu þeir Tyrkinn, Hugi, Fritz, Herkúles og Gyðnið til Bjarkans og var Texas Hold'em spilað fram á nótt. Fritz vann fyrstu lotu og Tyrkinn þá seinni. Skírdagur var því nokkuð þunnur og góður. Á föstudaginn langa lagði tyrkinn af stað í ljósmyndaferð um Snæfellsnes með vösku gengi af ljósmyndakeppni.is. Einir 10 myndarar lögðu af stað, tveir sóttir í Borganesi og svo var keyrt og myndað af kappi. Gist var á nesinu eina nótt og laugardagurinn notaður í meiri myndun áður en lagt var af stað heim. Ferðast var í rútu og myndaðist merkilega steikt og góð stemning á milli áfangastaða. Skilyrði voru ekki þau bestu fyrir ljósmyndun, en nesið er afar fagurt og nóg af myndefni. Á páskadag var svo snætt hjá foreldrum tyrkjafrúarinnar og spilað og kani á heimili Gerber fjölskyldunnar að því loknu. Fínir páskar þar á ferð.
Annars er allt gott af tyrkjunum að frétta. Soldáninn verður sífellt kræfari í leikfimi og er nýjasta sportið að reyna að hoppa jafnt hlaupandi og úr kyrrstöðu. Náði í gær að detta í fimmta skiptið á sama ennisblettin sem hann náði að gata hér um árið, merkilegt nokk. Sá stutti er farinn að geta tjáð sig nokkuð vel miðað við aldur og fyrri störf og hefur gaman af. Þessa dagana er Georg, Stubbarnir og Kisur málið.
Nokkrar myndir úr ferðinni:
   
Fleiri myndir úr ferðinni má sjá hérna í fullri stærð
3 Athugasemdir:
Ekki þykist ég kannast við Pókerklúbbinn p****!! Hvurslags pólitísk réttmælgi er þetta hér á síðunni? Nefna skal hlutina réttum nöfnum pungurinn þinn! "You gotta' know when to hold'em - know when to fold'em!" K. Rodgers
Think of the children!
"...know when to walk away, know when to run..." Kenny G
Einföld anatomía - þ.e.a.s. klúbburinn er kenndur við þann líkamspart á karlmönnum sem nefnist m.a. Scrotum upp á ensku og sumir segja ljótasta orð þeirrar ágætu tungu. Börnin verða að læra þetta eins og annað ... og læra nú annað eins af þessu blessaða neti :) suss ...
|
|
|
|
|