Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans][Kaupa myndir tyrkjans]

19.5.05

:: Tyrkinn 16:26 [+] ::

Góðan dag....
Jæja þá, meira en mánuður síðan Tyrkinn lét í sér heyra. Þetta er það langur tími að erfitt er að rifja upp atburðarás þessa tíma en sitt hvað gefur þó gerst á þessum tíma. Helst má geta þess að tyrkinn og tyrkjafrúin skelltu sér til Kaupmannahafnar fyrir skemmstu. Þá var farið út á uppstigningardag og komið heim á sunnudegi. Poppararnir stóðu fyrir ferðinni og héldu þeir svokallað sveitaball þar ytra fyrir landflóttalýðinn. Ferðin var fín og svona hæfilega skipulagslaus sem gaf fínan tíma í afslöppun og öldrykkju. Á leiðinni út var keypt ein nett skyndimyndavél fyrir veski tyrkjafrúarinnar og skal hún hér með vera þekkt sem pistólan (á meðan tyrkjavélin þekkist sem fallbyssan). Að sjálfsögðu voru teknar nokkrar myndir í ferðinni en framtaksleysi tyrkjans varð til þess að einungis nokkrar myndir af sveitaballinu rötuðu á netið fyrst í stað og má finna þær hér. Almennar ferðamyndir rata á internetið síðar meir. Nú, Hugi nokkur býr enn í Köben og hafði hann nokkurn tíma til ölsetu þar ytra og var reglulega gaman að hitta kappann að venju. Hann og spúsa hans stefna á flutninga til Haag í Ágúst þar sem þau hyggjast læra meira og eru því ekki væntanleg heim í bráð. Tyrkinn náði einnig að hitta á Haddockmaster sem vann með tyrkjanum en vinnur nú í baunalandi (þótt hann búi enn í Svíþjóð). Ferðin var góð og tók nokkra daga að ná sér á strik eftir herlegheitin. Tyrkjafrúin átti svo afmæli í síðustu viku og var brugðið sér út að borða að venju. Varð veitingastaðurinn Vox fyrir valinu og verður tyrkinn að koma því áleiðis að sá staður kom betur út en áður og fóru tyrkirnir sáttir þaðan.

Soldáninn þroskast enn hratt og er farinn að tala furðu mikið, mynda stuttar setningar og gera sig skiljanlegan (sem fer vel saman við "ákveðnina" í honum). Sumarið á vel við kauða og vill hann eyða öllum sínum stundum utandyra og er búinn að kanna garðinn í þaula.

Meira seinna....

0 Athugasemdir:

Post a Comment


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra