|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans][Kaupa myndir tyrkjans]
21.7.05
Jæja...
Sennilega eru flestir ef ekki allir hættir að kíkja hingað, en tyrkinn hefur verið lamaður í skrifhendinni síðastliðnar vikur og mánuði. Ætli sumarið sé ekki sökudólgurinn þegar rútínan fer í hönk. Nú, tyrkjarnir tóku sér sumarfrí í júní fram í júlí og höfðu það gott. Fóru í stutta útilegu í Borgarfjörðinn og tyrkinn fór í Reykjadalsá í hina árlegu veiðiferð. Annars var garðurinn nýttur í góða veðrinu í júní og tíminn einnig notaður í að dytta að húsinu.
Tyrkjafrúin er endanlega sýkt af golfbakteríunni eftir að hafa prufað að spila Ljúfling einu sinni. Eftir þennan fyrsta hring með lánssett tók hún ekki annað í mál en að kaupa sér eigin sett á leiðinni heim og var afar sátt með að vera komin með prik í poka, enda pokinn fallega brúnn og prikin að gera sig.
Síðustu helgi fóru svo tyrkjarnir suður með landi að Kirkjubæjarklaustri þar sem tyrkjamóðirin stóð fyrir fjölskylduhamingju. Gist var í bændagistingu og þrátt fyrir skítaveður var þetta góður túr og allir í góðu stuði. Tyrkinn tók einhverjar myndir (áttu að vera fleiri, en veðrið gaf varla færi á miklu utandyra) og má búast við þeim hingað næstu daga. Til stendur að rúlla í útilegu þessa næstu helgi ef veður gefst (fín spá núna) og er verið að ræða Húsafell í því sambandi.
Soldáninn vex og dafnar og er farinn að spræna í kopp og setja saman orð (sbr. stór-bíll eða pela-sækja). Hefur hann verið í pössun undanfarna daga hjá Alexöndru frænku sinni og er alsæll enda boðið upp á langa göngutúra í grasagarðinn og fleiri spennandi staði. Sá stutti byrjar svo á leikskóla í byrjun ágúst.
Myndir úr veiðitúrnum
Meira seinna...
|
|
|
|
|