|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans][Kaupa myndir tyrkjans]
7.6.06
Seinbúnar Páskamyndir...
Síðan hefur verið snar dauð í langan tíma og er þetta tilraun til að bæta úr því.
Tyrkinn er kominn í feðraorlof og sumarfrí og því ætti að gefast tími til að skrifa. Tyrkjafrúin á að eiga hvað og hverju og er áætlaður komutími (e. ETA) Emírsins föstudagurinn næstkomandi, sama dag og HM byrjar.
Verið er að gera skúrk í myndunum líka og loksins fóru t.d. páskamyndir inn á netið í gær eftir langa veru í myndavélinni (tyrkinn er kominn með nýja linsu á myndavélina sem ætti að glæða myndatökur ásamt nýju væntanlegu módeli næstu daga)
Ákveðið var að hafa svipað konsept á páskaeggjaátsmyndum í ár og í fyrra og komst Tyrkinn meira að segja að því að Soldáninn var í sömu peysunni bæði árin....
Páskar 2006 / Páskar 2005
 
Fleiri myndir væntanlegar....
1.2.06
Nýársgleðin...
Hin árlega nýársgleði verður haldin næsta laugardag. Að venju stóð til að hafa hana á nýársdag, en sökum vinnudags daginn eftir og skorts á undirbúningsleysi var ákveðið að fresta henni um mánuð. Planið er svo að hafa hana framvegis fyrsta laugardag hvers árs.
Emír á leiðinni
Þann 9. júní á að koma annar drengur í heiminn. Hann mun verða þekktur sem "Emírinn", nema Soldáninn mun sennilega kalla hann "Litla" til að byrja með (þar sem hann sjálfur er stóri).
1 Athugasemdir:
er Soldánninn þá litli tyrkinn??Það er orðið svo erfitt að halda utan um þessa titla hehe:) Til hamingju með væntanlegan emír.. Takk fyrir innlitið og komdu endilega oftar. Var að skoða myndirnar.. sérstaklega skemmtilegar þessar með fjölskyldu Tyrkjasysturinnar og líka litla tyrkja..þvílíkt krútt. Knús og kossar frá París xxx
28.11.05
Jóla-hvað?
Nú fer að styttast í þetta. Tyrkirnir tóku svokallað æði á laugardaginn og kláruðu allar jólagjafir í einum keppnis-rykk, nema fyrir hvort annað. Og það í nóvember, geri aðrir betur... Tyrkjafrúin missti sig svo í blómaval og skreytti tyrkjanesið hátt og lágt og bar fyrir sig að einn dagur væri í fyrsta í aðventu. Þorláksmessuplan tyrkjans í vaskinn enn eitt árið. Ykkur er frjálst að gefa tyrkjanum eftirfarandi hluti í jólagjöf, sérstaklega ef þið viljið vera rausnarleg og fara í fyrstu hlutina.....
Herra Bowens Herra 10-22mm Herra 17-40mm Herra 50mm Herra Woods Herra Hjálmar Herra Rauðhaus
...gleymdi tyrkinn að segja ykkur?
...að það er annað tyrkjabarn á leiðinni? Segist ætla að kíkja út áður en HM byrjar næsta sumar.
1 Athugasemdir:
Til hamingju með það!! og líka með trúlofunina!! Hef ekki alveg verið með á nótunum eftir að ég kom hingað til niðurlanda og var bara að sjá þetta allt saman núna. Hugsi
30.9.05
Moðer...
Einhver fauti á hvítum sendiferðabíl bakkaði utan í Tyrkjavagninn í dag, tyrkjafrúin var á leiðinni út í bíl og sá í skottið á kvikindinu bruna burt af vettvangi. Hvað er að fólki?
En Soldáninn á afmæli á mánudaginn, gott stuð.
12.9.05
Helgin
Ágætis helgi að baki. Undanfarnar vikur er óttaleg þreyta búin að hrjá tyrkjann, almennt orkuleysi og leti þar á ferð. Föstudagurinn toppaði þetta alveg og var tyrkinn sofnaður á sófanum upp úr klukkan 22 og fór rakleitt inn að sofa þegar tyrkjafrúin vakti hann þegar hún kom heim. Sennilega í þriðja skipti frá upphafi sambands tyrkjanna að tyrkinn fari í rúmmið á undan tyrkjafrúnni. Laugardagurinn var ögn líflegri, hóað var í nokkra í mat og meððí. Gyðnið, Ólöf, Herkúles og Arna mættu í matinn og Geiri Agg og Berglind mættu svolítið seinna og lá ágætlega á fólki. Tyrkinn nýtti tækifærið og tók nokkrar myndir af liðinu en aðeins nokkrar hafa ratað á alnetið.
Dagurinn í dag var svo mjög mikill mánudagur, hófst á því að þegar tyrkirnir voru að rúlla út úr hlaði heyrðist eitthvað vafasamt hljóð og eitt dekkið náttúrulega loftlaust. Alltaf gaman að skipta um dekk í súð á mánudagsmorgni...
Tyrkinn tók nokkrar myndir af fjölskyldu systur sinnar um daginn og má finna þær hér. Helgarmyndir má sjá hér hins vegar (vinnslan kannski ekki upp á marga fiska þar þó).
23.8.05
Myndir
Loksins gerði tyrkinn skurk í myndamálum og setti misgamlar myndir á netið í gær.
Hringamyndir, Macro

Leifur, Egill og Hekla

Fjölskylduferð í Kirkjubæjarklaustur

Leifur og Lilja amma

(Smellið á myndirnar fyrir fleiri)
1 Athugasemdir:
Kæra fólk! Ég óska ykkur innilega til hamingju með trúlofunina:-) og smellið kossi á litla engilinn. GuðbjörgJ
22.8.05
Bling Bling
Tyrkinn og tyrkjafrúin eru trúlofuð. Settu upp hringa í stíl á laugardaginn samkvæmt gamalli hefð í góðu stuði í Borgarnesi. Bling Bling.
6 Athugasemdir:
Það var lagið!Til hamingju!!!!Eitthvað er nú frétta fluttningurinn lélegur í þessari fjölskyldu. Bara gott að fá fréttirnar fyrir jól. Enn og aftur til hamingju. Kveðja frá Kóngsbakkafólkinu
Enn og aftur knús til hamingju. N.b. Tyrkjafrúarforeldrarnir settu upp hringana á svipuðum slóðum fyrir tæpum 35 árum. Kveðja tengdó.
HÚRRA HÚRRA! TIL HAMINGJU HERRA OG FRÚ Turk! Sona á að gera þetta elsku fólk ! Gydnid
Ég tek undir með öðrum: TIL HAMINGJU!! Geiri Agg
Gratúlera!
Loksins komst Tyrkinn á hnéin :-) RISA-hamingjuóskir frá Gydu frænku
|
|
|
|
|