Hvað er að gerast?

Posted January 6th, 2008 by David Hauksson
Categories: Snilld

Bíddu bíddu nýtt ár og alles… Af hverju lét mig enginn vita?

Snilldin hugsar: “……..”

Tvífarar

Posted July 5th, 2007 by David Hauksson
Categories: Bolti, Snilld, Tvífarar

Tvífarar

Snillding hugsar: “good day at the office?”

Emilie Simon

Posted March 5th, 2007 by David Hauksson
Categories: Snilld, Tónlist

Emilie Simon 

Snilldin skellti sér á tónleika í kvöld með Emilie Simon í Háskólabíó… Emilie er frönsk söngkona sem hefur vakið mikla athygli í heimalandi sínu síðustu ár en hún er líklega frægust fyrir að hafa samið tónlistina í Mörgæsamyndinni svokölluðu.  Tónleikar hennar voru í tengslum við franska menningarhátíð sem nú stendur yfir Pourqoi Pas..

Tónlist Emilie væri hægt að lýsa sem melódísku rafpoppi og erum við hjá Snilld.net að fíla plötuna hennar Végétal frá síðasta ári mjög vel.  Ekki á hverjum degi sem franskir tónlistarmenn slá í gegn og það með tónlist sungna á frönsku því lögin hennar eru eru ca. 60-70% sungin á frönsku.  Til viðbótar við lögin sín flutti hún ábreiðu af Stooges laginu “I Wanna Be Your Dog” og Come As You Are, Nirvana laginu. 

Hér eru nokkrir You Tube linkar á Emilie Simon lög…

Le Vieil Amant

Fleur de Saison

Snilldin hugsar : “And Björk Of Course”

Tvífarar

Posted March 4th, 2007 by David Hauksson
Categories: Snilld, Tvífarar

Tvífarar

Snilldin hugsar: “Merkið tryggir gæðin”

Hjá Jóni án Péturs og Björns

Posted January 28th, 2007 by David Hauksson
Categories: Snilld, Tónlist

Toppþáttur á laugardagskvöld hjá Jóni Ólafs um grasrótina í íslenskri popptónlist.  Hrifumst mjög af hljómsveitinni Hjaltalín og alveg ljóst að maður á eftir að fylgjast með framgangi þeirrar sveitar.. Mælum með að fólk tékki á þessu lagi á meðan hægt er að horfa á þáttinn á rúv.is.  Sprengjuhöllin átti líka lag þarna og stóð fyrir sínu en það kom ekki jafn mikið á óvart enda höfum við heyrt nokkur lög með þeim áður. 

Reyndar stóð til að við myndum berja Sprengjuhöllina augum um helgina en tónleikum Péturs, Björns og Jóns sem voru áberandi lítið auglýstir var frestað með enn minna auglýstum hætti.  Verður að viðurkennast að það kom óbragð í munninn á Snilldinni þegar kom í ljós að tónleikunum var frestað. Þetta leit út eins og einhver hefði ákveðið að nota tækifærið á meðan fólk væri enn blístrandi Young Folks til að selja inn á tónleika sem vitað var að yrðu aldrei í janúar.  Þó að upphæðin sé líklega lág fyrir þessa tónleika þar sem þeir eru haldnir á NASA þá er það amk ein leið til að auka tekjur tónleikahaldara að láta andvirði aðgöngumiða krauma í peningasjóðum í 3 mánuði.

Snilldin flautar: “If you knew my story word for word.. “

Kaffi

Posted January 20th, 2007 by David Hauksson
Categories: Matur og drykkur, Snilld

Latte

Snilldin hefur ekki verið fræg fyrir að drekka kaffi hingað til.  Gömul frænka sem nú er látin spurði okkur reglulega hvenær við ætluðum að verða fullorðin og byrja að drekka kaffi… hún hvarf yfir móðuna miklu án þess að geta hellt upp á kaffi fyrir mann.  Einnig í tengslum við vinnu höfum við oft þurft að svara kaffiboðum með hvimleiðum frösum eins og “nei takk, ég er voða lítill kaffidrykkjumaður” eða “nei takk, gæti ég kannski fengið vatn í staðinn” en núna á nýju ári, þegar styttist í að Snilldin verði 31 árs eru hjólin loks farin að snúast í kaffimálunum.. 

Síðasta árið eða svo höfum við verið að fá okkur Caffe Latte með bragðefnum öðru hvoru hjá stöðum eins og Kaffitári, Te og Kaffi eða á Starbucks á ferðum okkar erlendis.  Hvort sem það er sýrópið eða ávanaefnin í kaffinu þá hefur þetta fikt okkar leitt til þess að löngunin í kaffi vex með hverjum deginum og núna er svo komið að kaffi úr Selecta vélum er orðinn daglegur gestur inn fyrir varir okkar og það án þess að sýrópi sé bætt út í.  Enn sem komið er höfum við ekki hellt upp á kaffi fyrir eigin notkun á heimili okkar en við óttumst að það gæti gerst fyrr en okkur grunar.   Við hellum að öðru hvoru upp á kaffi fyrir matargesti og fáum okkur þá bolla með en lengra hefur heimilisneyslan ekki komist. 

Kaffi er stór hluti af menningu heims, þriðji vinsælasti drykkur veraldar og sjötta verðmætasta útflutningsvara heims í landbúnaði. Það er gaman að lesa sér til um kaffi, kaffirækt og mismunandi kaffidrykki á Wikipedia en þar er heilmikil fræði  á ferð og gefur þessi lestur manni löngun til að læra að laga gott kaffi.  Í öllu falli þá er óhætt að segja að Snilldin hafi byrjað að drekka kaffi á þrítugu sem er enn eitt merki þess að við erum orðin fullorðin.

Snilldin hugsar: “Viltu kaffi væna?”

Topplistar 2006

Posted January 10th, 2007 by David Hauksson
Categories: Snilld, Tónlist

Topplistar eru skemmtilegir.  Það besta við topplista er að við það að skoða topplista á netinu s.s. eins hjá Pitchfork eða hjá Sýrðum Rjóma þá uppgötvar maður í leiðinni svo mikið af góðri tónlist.. eða fær ábendingar um tónlist til að tékka á og kanna betur. 

Alla vegana.. Í staðinn fyrir að blogga á síðasta ári höfum við verið að hlusta töluvert á tónlist.. hér er toppurinn á ísjakanum..  

Topp 10 erlendar plötur “útgefnar” á árinu 2006

10. Dirty Pretty Things - Waterloo to Anywhere

Carl Barat með hraðsoðna rokkplötu sem hefur keyrsluna og kúlið sem einkenndi Libertines rokkið en það vantar heilmikið upp á að þessi plata sé í sama flokki og Up the Bracket og það er bara ein ástæða fyrir því.. og hún er sú að Pete Doherty kemur hér hvergi nálægt.  Það er að segja að X-Factorinn vantar… já eða þannig.

9. Ratatat - Classics

Classics er alveg jafn góð og b-hliðin á Ratatat (2004) og gæti eins verið c-hliðin á þeirrí ágætu plötu.  Góð tónlist þegar maður er að fara milli terminala á Heathrow. 

8. The Raconteurs - Broken Boy Soldier

Jack White býr til kúl gamalt sánd og þessi plata hljómar þannig.. Það versta er samt að hljóðblöndunin er alveg út á túni og erfitt hreinlega að hlusta á þessa miklu blasti.

7. Lemonheads - Lemonheads

Evan Dando er vanmetinn tónlistarmaður að okkar mati.  Poppsmellirnir virðast renna undan honum þegar hann vill og þessi Lemonheads plata var því boðin velkomin í heiminn með mikilli hlustun í sumar. 

6. Damien Rice - 9

Vorum mjög skeptísk á nýja plötu frá Damien Rice.  Sérstaklega eftir að hann seldi Blowers Daughter í bíómyndir og bjó til radio edit af því lagi til að höfða til breiðari hóp hlustenda (lesist hlustendur Bylgjunnar).  Þvert á efasemdir okkar þá er 9 bara fínasta plata og Damien Rice virðist alveg ná að viðhalda þeim gír sem hann var í á O.  Væri gaman að sjá nýju lögin live!!

5. Tapes n Tapes -  The Loon

Insistor eitt af lögum ársins og þessi plata fetar slóðann sem bönd eins og Wolf Parade, Arcade Fire og Modest Mouse hafa verið að troða síðustu 2-3 ár.  Gott rokk.

4. Islands - Return To The Sea

Eins og sagt var á rjómanum… Nick Diamond sannar að það sé líf eftir The Unicorns!… ehm.. já eða þannig.. Við hjá Snilld.net höfum ekki hugmynd um hvaða band The Unicorns er en alla vega þá tókum við eftir því að Nick þessi er vel á lífi og plata Islands er löðrandi snilld.  Ekki skemmir fyrir að frammistaða þeirra á Airwaves var til fyrirmyndar.

3. M-Ward - Post War

Líklega sú tónlist sem kom mest á óvart á árinu.. Gaman þegar maður uppgötvar að því er manni finnst nýtt sánd og óhætt að segja að við höfum ekki átt von á heyra svona tónlist árið 2006. 

2. Mates of State - Bring it Back

Frábærar melódíur og söngur hjá þeim hjónum er það sem fékk okkur til að taka ástfóstri við þessa plötu.  Gaman að sjá þau spila í haust á Airwaves.

1. Arctic Monkeys - Whatever People Say I Am, That’s What I am not

Þegar við vorum að fara yfir hvað við höfðum verið að hlusta á gátum við ekki annað en viðurkennt að við höfum bæði hlustað mjög mikið og haft mjög gaman að því að hlusta á Arctic Monkeys.  Ungæðislegt rokk með sérbreskum textum sem minnir á Up the Brackets (að okkar mati besta breska rokkplata síðustu 10 ára) sem kemur blóðinu af stað.  Hressandi!

Snilldin hugsar:”Fokkjú Lubbi.. Þér er ekki boðið!”

Kannast einhver við kauða?

Posted January 5th, 2007 by David Hauksson
Categories: Bolti, Snilld

Hver er leikmaðurinn?

Ef þú þekkir leikmanninn þá máttu senda mér svar í commenti?

Snilldin hugsar: “Því miður fyrir Eggert er viðkomandi ekki lengur á mála hjá West Ham?”

Gleðilegt ár

Posted January 4th, 2007 by David Hauksson
Categories: Snilld

Snilldin óskar öllum á netinu gleðilegs nýs árs… og slær þar með persónulegt met í fjöldi nýársóska.

Snilldin hugsar: “Stórir hlutir þegar farnir að gerast”

Tvífarar

Posted December 31st, 2006 by David Hauksson
Categories: Tvífarar

Tvífarar

Snilldin hugsar: “Til hamingju Íslendingar!”